Vera í víti af Marilyn French

Spar op til

15 kr.

?/100
Endnu ingen anmeldelser

Vera í vítiaf Marilyn French

Eftir nokkrar rangar sjúkdómsgreiningar var Marilyn French loks árið 1992 greind með krabbamein í vélinda. Í þessum endurminningum leiðir hún lesendur í gegnum skelfilega reynslu sína af geisla- og lyfjameðferð og dáinu sem fylgdi í kjölfarið. Enginn bjóst við að hún kæmi aftur til meðvitundar og því síður að hún næði bata. Þrátt fyrir alvarleg veikindi sem hrjáðu hana lengi á eftir tókst henni að lifa af og þótti það ganga kraftaverki næst.

Með tilfinningalegri einlægni sökkvir hún sér í eigið líf og sína baráttu við lækna og heilbrigðiskerfið þar sem hún býður greiningum og hrakspám birginn og stígur upp úr áföllunum opnari en nokkru sinni fyrr. Eins og hún segir sjálf: "Dauðinn setur mark sitt á lífið og opnar okkur fyrir nýja sýn á merkingu þess og tilgang".
Marilyn French lauk doktorsprófi í bókmenntum frá Harvard háskóla. Hún hefur skrifað fimm skáldsögur: My Summer with George, Her Mother's Daughter, The Women's Room (Kvennaklósettið), The Bleeding Heart og Our Father og auk þess fjögur fræðirit, þ.á.m. The War Against Women og Beyond Power: On Woman, Men and Morals.
?/100
Endnu ingen anmeldelser
De bedste priser:

Ingen boganmeldelser ...Læs mere

Vi er endnu ikke stødt på en boganmeldelse af 'Vera í víti' i de 453 aviser, blogs og andre medier, vi har fulgt siden 2010. Men vi har fundet 106.955 andre anmeldelser af bøger.