Víga-Glúms saga af Óþekktur

Spar op til

7 kr.

?/100
Endnu ingen anmeldelser

Víga-Glúms sagaaf Óþekktur

Víga-Glúms saga er með elstu Íslendingasögum en hún er talin rituð á fyrri hluta 13. aldar. Verkið er ævisaga og á sér stað á 10. öld. Söguhetja þess er Glúmur Eyjólfsson en hann var mikill vígamaður og hlaut þannig nafnið Víga-Glúmur. Hann hefur jafnvel verið talinn svipa til sjálfs Egils Skalla-Grímssonar, grimmustu hetju Íslendingasagnanna.

Glúmur bjó á Þverá í Eyjafirði, hann var skáldmæltur en þótti einnig klókur bragðarefur. Upphaflega hélt hann til Noregs að sanna sig hjá frændum sínum en síðar hélt hann heim þar sem hann átti í deilum við nágranna sína eins og flestar hetjur Íslendingasagnanna.
Sagan er sögð á skoplegan hátt og er hún háði blandin og skemmtileg lestrar.

Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
?/100
Endnu ingen anmeldelser
De bedste priser:

Ingen boganmeldelser ...Læs mere

Vi er endnu ikke stødt på en boganmeldelse af 'Víga-Glúms saga' i de 453 aviser, blogs og andre medier, vi har fulgt siden 2010. Men vi har fundet 106.955 andre anmeldelser af bøger.