Förunauturinn af H.C. Andersen

Spar op til

8 kr.

?/100
Endnu ingen anmeldelser

Förunauturinnaf H.C. Andersen

Jóhannes er hjartahreinn ungur maður sem í upphafi sögunnar situr við dánarbeð föður síns. Eftir lát gamla mannsins ákveður hann að halda út í heiminn, með föðurarf sinn og fátæklegar eigur í veganesti, ásamt einlægri trú á góðan guð. Á ferð sinni gerir hann ýmis góðverk, svo sem að gefa aleigu sína þorpurum sem hyggjast svívirða lík látins manns.

Eftir að hafa verið nokkurn tíma á ferðinni verður á vegi hans sérstæður förumaður, og ákveða þeir að fylgjast að. Sá hefur í fórum sér töfrasmyrsl sem læknað getur hverskonar krankleik, en í laun fyrir slíka greiða þiggur hann ýmis einkennileg amboð. Félagarnir fara víða og koma loks til borgar nokkurrar, þar sem Jóhannes verður yfir sig ástfanginn af fagurri konungsdóttur. Sú reynist hin mesta galdrakind, sem hefur líf margra vonbiðla á samviskunni. Þá kemur Jóhannesi vel að eiga sér fjölkunnugan förumann að vini.

Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson.

H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. „Förunauturinn" sameinar mörg kunnugleg ævintýraminni, eins og grafræningja og prinsessu hverrar biðlar hljóta grimmileg örlög. Mest er þó áberandi hin einlæga guðstrú Andersens sjálfs, sem fylgdi honum alla ævi. En aðalpersóna sögunnar hvikar hvergi í trú sinni á algóðan guð, sem ævinlega muni leiða hann við hönd sér. rn
?/100
Endnu ingen anmeldelser
De bedste priser:

Ingen boganmeldelser ...Læs mere

Vi er endnu ikke stødt på en boganmeldelse af 'Förunauturinn' i de 454 aviser, blogs og andre medier, vi har fulgt siden 2010. Men vi har fundet 107.307 andre anmeldelser af bøger.