Hreinsarinn 2: Stökkið af Inger Gammelgaard Madsen

Spar op til

2 kr.

?/100
Endnu ingen anmeldelser

Hreinsarinn 2: Stökkiðaf Inger Gammelgaard Madsen

Roland Benito hjá kærudeild lögreglunnar er kallaður á vettvang ásamt kollega sínum til að yfirheyra tvo lögreglumenn í útkalli. Kvörtun hafði borist út af hávaða í heimahúsi, en í sömu andrá og lögregluna ber að garði stekkur maður út um glugga á fimmtu hæð. Ekkert virðist vera grunsamlegt við aðstæður. En forvitni Rolands vaknar þegar hann ræðir við dótturdóttur sína sem reynist vera besta vinkona dóttur fangavarðarins sem dó. Síðar heyrir hann orðróm um að fangi hafi látist í fangelsinu þar sem hann vann og að fangavörðurinn hafi sætt hótunum og eftirliti. Var þetta kannski eitthvað annað en sjálfsmorð? Fréttakonan Anne Larsen á sjónvarpsstöðinni TV2 á Austur-Jótlandi er einnig að fjalla um þessi mannslát. Í rannsókn sinni hnýtur hún um annað mannslát, af lögmanni sem lést í umferðarslysi. Hún kemst að því að öll þessi mannlát tengjast tilteknum fanga, barnamorðingjanum Patrick Asp, sem afplánar lífstíðardóm fyrir morð á barnungri dóttur sinni. Hann situr í sama fangelsi og fangavörðurinn starfaði.

Hreinsarinn er glæpasaga í sex þáttum.

Inger Gammelgaard Madsen (f. 1960) er danskur rithöfundur. Inger Gammelgaard Madsen er grafískur hönnuður að mennt. Fyrsta glæpasaga hennar, „Dukkebarnet", kom út 2008. Hún hefur skrifað fjölmargar glæpasögur, meðal annars „Drab efter begæring" (2009), „Slangers gift" (2014), „Dommer og bøddel" (2015) og „Blodregn" (2016).
?/100
Endnu ingen anmeldelser
De bedste priser:

Ingen boganmeldelser ...Læs mere

Vi er endnu ikke stødt på en boganmeldelse af 'Hreinsarinn 2: Stökkið' i de 454 aviser, blogs og andre medier, vi har fulgt siden 2010. Men vi har fundet 107.320 andre anmeldelser af bøger.