Þjófurinn sem skildi eftir sæði sitt á vettvangiaf Ýmsir
Frá júní 2002 til maí 2003 var brotist inn í mörg stór einbýlishús í Gautaborg og öðrum borgum og bæjum í vestanverðri Svíþjóð. Eitt var það sem var með sama hætti í öllum innbrotunum og lögreglan dró af því þá ályktun að innbrotin væru öll framin af einum og sama manninum – þrátt fyrir að fjöldi innbrotanna benti til annars. Auk þess voru innbrotin framin af ótrúlega miklu áræði – í mörgum tilvikum voru húseigendurnir heima við þegar brotist var inn. Rannsóknin leiddi lögregluna að lokum á slóð 21 árs hælisleitanda sem hafði setið í fangelsi í heimalandi sínu þegar hann var unglingur og hafði mátt þola pyntingar. Var það ástæðan fyrir undarlegu verklagi hans? Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ástæðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
Vi er endnu ikke stødt på en boganmeldelse af 'Þjófurinn sem skildi eftir sæði sitt á vettvangi' i de 454 aviser, blogs og andre medier, vi har fulgt siden 2010. Men vi har fundet 107.370 andre anmeldelser af bøger.