Leynda konan af Victoria Holt

Spar op til

7 kr.

?/100
Endnu ingen anmeldelser

Leynda konanaf Victoria Holt

Faldir fjársjóðir. Dularfullir atburðir. Myrkir leyndardómar. Anna Brett óttast að þurfa að vera kennslukona á heimili annarra það sem eftir er ævinnar. En þegar hinn glæsilegi skipstjóri Redvers Stretton kemur aftur inn í líf hennar, ferðast hún frá köldu landslagi Englands yfir í dulúð Kyrrahafsins þar sem ekkert er það sem það lítur út fyrir að vera og hún lendir í miðri ráðgátu sem aðeins hún getur leyst. Meðan myndarlegi, ljóshærði og bláeygði skipstjórinn gerir sitt besta til að fá Önnu til að gleyma fortíð sinni áttar hún sig á því að myrk lendarmál liggja undir heillandi yfirborði hans. Morð fær mjög á ungu konuna og í draumum hennar eltir hana leyndardómur um falinn fjársjóð. Það er ekki tilviljun að skip Strettons er kallað „Leynda konan“ og á ferð þeirra að Kóraleyju í Kyrrahafinu neyðist Anna til að horfast í augu við manninn sem gæti átt eins mörg leyndarmál og hún. Á frumstæðri eyjunni, þar sem fólk trúir enn á galdra og myrk öfl, kemur sannleikurinn um Redvers Stretton í ljós. Og ráðgátan um leyndu konuna er loksins leyst.

Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.

?/100
Endnu ingen anmeldelser
De bedste priser:

Ingen boganmeldelser ...Læs mere

Vi er endnu ikke stødt på en boganmeldelse af 'Leynda konan' i de 454 aviser, blogs og andre medier, vi har fulgt siden 2010. Men vi har fundet 107.704 andre anmeldelser af bøger.