Örlagavefur af Victoria Holt
?/100
Endnu ingen anmeldelser

Þegar móðir Noelle Trematon, söngleikjastjarnan Desíra, kynnist munaðarleysingjanum Lísu Fennell breytist líf þeirra mæðgna að eilífu. Fljótlega fellur Desíra frá á voveiflegan hátt og Noelle, sem aldrei hefur þekkt föður sinn, verður ástfangin. En í kjölfar andláts Desíru koma upp á yfirborðið ýmis leyndarmál sem eitt af öðru draga Noelle á gamlar slóðir móður sinnar í París þar sem ekki er allt sem sýnist.

Noelle er flækt í örlagavef. Hana langar einfaldlega að lifa hamingjusömu lífi en flókin fjölskylduleyndarmál virðast ætla að standa í vegi fyrir því. Sorgin er ekki langt undan en getur ástin sigrað?

Í þessari sögulegu skáldsögu skrifar Victoria Holt snilldarlega um sambönd foreldra og barna, syndaaflausn, leyndarmál og auðvitað flækjur ástarlífsins á viktoríanska tímanum, eins og henni einni er lagið.

Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.

De bedste priser:
NetboghandlerPrisPris inkl. fragt
Bog&ide49,95
Örlagavefur af Victoria Holt

Örlagavefur

af Victoria Holt

Med forord af

Oversat af Margrét Þóra Árnadóttir

Ebog (ePub), 269 sider

ISBN: 9788728045718

Udgivet 30-10-2025 af SAGA Egmont

Ingen boganmeldelser ...

Vi er endnu ikke stødt på en boganmeldelse af 'Örlagavefur' i de 527 aviser, blogs og andre medier, vi har fulgt siden 2010. Men vi har fundet 116.570 andre anmeldelser af bøger.