Vesalingarnir II af Víctor Hugo
?/100
Endnu ingen anmeldelser
Baráttan við fátæktina og misréttið hefur kostað Fantine lífið. Jean Valjean er enn á ný á flótta undan fortíð sinni en réttsýni lögreglumaðurinn Javert er stöðugt á hælum hans. Þrátt fyrir mótbyr heldur Valjean ótrauður áfram í baráttunni fyrir réttlæti en hann hafði lofað Fantine að vernda dóttur hennar, Cosette, sem sætir illri meðferð í fóstri hjá Thénardier fjölskyldunni. Hér kristallast barátta milli góðs og ills í áhrifamikilli frásögn um von, æðruleysi og elju.
Bókaserían Vesalingarnir kom fyrst út árið 1862 og naut umsvifalaust mikilla vinsælda. Bókin hefur verið þýdd á fjölda tungumála og er talin ein áhrifamesta skáldsaga sem gefin hefur verið út í Evrópu. Sagan gerist á fyrrihluta 19. aldar í Frakklandi þegar miklar hræringar eiga sér stað í samfélaginu. Þar fléttast líf ólíkra einstaklinga saman í örlagaríka atburðarás þrunginnar ástríðu, áræðis, og þrautseigju. Eftir skáldsögunni hafa verið gerðar fjölmargar kvikmyndir en árið 2012 fóru Hugh Jackman, Anne Hathaway og Russel Crowe með aðalhlutverk í eftirgerð Vesalingana undir leikstjórn Tom Hoopers.
Victor Hugo (1802-1885) var franskur skáldsagna-, ljóða- og leikritahöfundur. Hann er talinn einn fremsti og áhrifamesti rithöfundur Frakklands en Vesalingarnir og Hringjarinn í Notre Dame eru meðal þekktustu skáldsagna hans. Ásamt því að vera einn af máttarstólpum rómantísku stefnunnar á 19. öld var Hugo einnig mikill mannréttindasinni og endurspeglast þau viðhorf í mörgum verka hans. Fjöldi bóka Hugos hefur verið endurgerður í formi sviðsverka og kvikmynda.
De bedste priser:
NetboghandlerPrisPris inkl. fragt
Bog&ide69,95
Vesalingarnir II af Víctor Hugo

Vesalingarnir II

af Víctor Hugo

Oversat af Ragnar E. Kvaran & Einar H. Kvaran

Ebog (ePub), 271 sider

ISBN: 9788728449165

Udgivet 04-01-2023 af SAGA Egmont

Ingen boganmeldelser ...

Vi er endnu ikke stødt på en boganmeldelse af 'Vesalingarnir II' i de 525 aviser, blogs og andre medier, vi har fulgt siden 2010. Men vi har fundet 114.082 andre anmeldelser af bøger.