Hákarlar um borð af Heinz G. Konsalik
?/100
Endnu ingen anmeldelser

Hákarlar um borðaf Heinz G. Konsalik

Bert Wolff læknir er fullur tilhlökkunar að hefja nýtt starf á hinu glæsilega skemmtiferðaskipi, Fidelitas. Fljótlega eftir að skipið skríður úr höfn kemst hann í kynni við hina dularfullu Evu Bertram, og við það byrja óvæntar tilfinningar að bærast í brjósti hans. Þrátt fyrir að starf læknisins sé rólegt í byrjun ferðar er Wolff grunlaus um skelfinguna sem bíður á næsta leiti. Um borð eru verðmæti sem nema mörgum milljörðum dala og á meðal farþega eru fjórir kaldrifjaðir glæpamenn sem ásælast þau. Er leikurinn berst af skipinu inn í eyðimörkina upplifir Wolff sig í aðstæðum sem hann hefði aldrei órað fyrir að geta lent í.

Heinz G. Konsalik (1921-1999) var þýskur rithöfundur. Hann skrifaði vel á annað hundrað skáldsagna á ferli sínum sem nutu mikilla vinsælda og voru þýddar á fjölmörg tungumál. Áður en Konsalik lagði stund á skáldskap, starfaði hann sem fréttaritari í seinni heimsstyrjöldinni og varð sú reynsla honum mikill innblástur við bókaskrifin. Nafn Konsalik varð fyrst þekkt þegar bókin „Der Artz von Stalingrad“ kom út árið 1956 en seinna var kvikmynd byggð á sögunni. Nú hefur fjöldi kvikmynda verið framleiddur eftir sögum hans.

De bedste priser:
NetboghandlerPrisPris inkl. fragt
Bog&ide69,95
Hákarlar um borð af Heinz G. Konsalik

Hákarlar um borð

af Heinz G. Konsalik

Oversat af Andrés Kristjánsson

Indlæst af Kristján Franklín Magnús

Lydbog til download

ISBN: 9788728449240

Udgivet 27-11-2024 af SAGA Egmont

Ingen boganmeldelser ...

Vi er endnu ikke stødt på en boganmeldelse af 'Hákarlar um borð' i de 526 aviser, blogs og andre medier, vi har fulgt siden 2010. Men vi har fundet 114.361 andre anmeldelser af bøger.