Anna Lísa af H.C. Andersen

Spar op til

2 kr.

?/100
Endnu ingen anmeldelser

Anna Lísaaf H.C. Andersen

Anna Lísa er fríð og lífsglöð kona. Son eignast hún en enginn faðir í spilinu. Hún tekur á það ráð að gefa barnið verkamannahjónum. Sjálf ræður hún sig á heimili greifahjóna, og gerist brjóstmóðir sonar þeirra. Hún ber mikla ást til litla fallega drengsins en sjaldan hvarflar hugurinn að ljóta, bæklaða syni hennar sjálfrar.

Sonur Önnu Lísu vex upp, án þess að vera elskaður af nokkrum manni. Hann hrekst á milli staða en ræðst að lokum háseti á bát. Ekki vill betur til en svo að báturinn ferst og drengurinn hverfur í hafdjúpin. Á meðan er Anna Lísa orðin feit og fín kona, en hefur steingleymt litla syni sínum. Þegar hún heldur einn daginn í heimsókn til greifadrengsins síns, verður þó bernskuheimili sonarins á vegi hennar. Þar fréttir hún af andláti hans og vitrast einkennileg sýn, sem verður til þess að vekja samvisku hennar.

Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson.
H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. Sagan af Önnu Lísu er sérkennileg siðapredikun, um konu sem verður fótaskortur á hinum samfélagslegu dyggðum. Eins og föllnum konum ævintýranna er svo gjarnt, er hún fögur en dramblát. Innst inni er hún þó hjartahrein, og þar er pláss bæði fyrir ástina og guð.
?/100
Endnu ingen anmeldelser
De bedste priser:

Ingen boganmeldelser ...Læs mere

Vi er endnu ikke stødt på en boganmeldelse af 'Anna Lísa' i de 455 aviser, blogs og andre medier, vi har fulgt siden 2010. Men vi har fundet 107.824 andre anmeldelser af bøger.