Fyrsta ferð Sindbaðs (Þúsund og ein nótt 37) af Ýmsir

Spar op til

3 kr.

?/100
Endnu ingen anmeldelser

Fyrsta ferð Sindbaðs (Þúsund og ein nótt 37)af Ýmsir

Langar þig til þess að vita hvers vegna Sindbað varð sjómaður og hvernig ævintýri hans hófust? Hann átti helling af pening og mikinn auð, en honum tókst að missa allt frá sér og ákvað þess vegna að halda til sjós með von um farsæld. Hann kemur á gullfallega eyju og þegar hann hann heldur að heppnin sé með honum, áttar hann sig á því að eyjan er í raun risastór fiskur sem setur líf hans í hættu. Honum tókst á einhvern hátt að komast þaðan. En hvert ætlar hann næst og mun honum takast að finna auðin sem hann leitar að?

Þetta er 37. sagan í röðinni af 45 ævintýri í hinu klassíska safni "Þúsund og ein nótt".
Eftir að Sjarjar konungur er svikinn af konu sinni getur hann ekki treyst öðrum konum. Hann tekur sífellt við nýjar konur og afhausar þær svo. Þegar hann kynnist Sjerasade eru það töfrandi sagnamáttur hennar sem nær að halda henni á lífi, en sögur hennar heilla konung á þann hátt að hann fær sig ekki til þess að drepa hana. Ævintýralegu sögurnar sem innihalda forn heilræði hafa einnig þann mátt að geta breytt ákvörðunum og örlögum konungsins.
Hin einstaka list þess að segja sögur birtist í samansafni ævintýra "Þúsund og einnar nætur" sem hafa í margar aldir heillað ímyndunarafl kynslóða um allan heim. Það mætti jafnvel nefna sögurnar á meðal mikilfenglegustu framlaga Arabískra, Mið-Austurlenskra og íslamskra rita til heimsbókmennta. Heill hellingur af bókmenntum, tónlist, list og kvikmyndum hafa orðið til vegna innblásturs frá sögunum, sem halda áfram að hafa gríðarleg áhrif enn þann dag í dag. Sögurnar eru töfrum líkastar og uppfullar af ævintýrum og finna má margvíslegar uppfærslur af þeim í formi Aladdín, Alí Baba og Sindbað sæfara. Þú munt ekki sjá eftir því að gleyma þér um stund í ævintýrunum sem standa yfir í þúsund og eina nótt.
?/100
Endnu ingen anmeldelser
De bedste priser:

Ingen boganmeldelser ...Læs mere

Vi er endnu ikke stødt på en boganmeldelse af 'Fyrsta ferð Sindbaðs (Þúsund og ein nótt 37)' i de 454 aviser, blogs og andre medier, vi har fulgt siden 2010. Men vi har fundet 107.479 andre anmeldelser af bøger.